Er búinn að fara á nokkrar myndir á RIFF og er nokkuð sáttur með afraksturinn. Myndirnar eru samt auðvitað misgóðar en hér eru fyrstu 4 myndirnar sem ég fór á:
Bad Family
Bad Family fjallar um mann sem skildi snemma við konuna sína og ólu þau upp sitthvort barnið, maðurinn fékk soninn og konan dótturina. Sextán árum síðar deyr konan og dóttirin kemur inn í líf feðganna og virðist ætla að eyðileggja allt sem faðirinn hafði byggt upp í lífi sonar síns. Honum líst ekkert á þetta nýja, nána samband systkinanna og reynir hvað sem það kostar að slíta þeim í sundur. Fyrsta myndin sem ég fór á og í heildina fannst mér þessi mynd nokkuð góð en stóð ekkert rosalega upp úr. Leikarahópurinn var allur mjög góður og þá sérstaklega sá sem fór með hlutverk föðurins. Hef eiginlega ekki mikið að segja um myndina en hún var þægilega löng og plottið var ágætt (smá sifjaspell reyndar).
Womb
Cyrus
Toxic Playground
Toxic Playground fjallar um eitraða blýhrúgu sem var komið fyrir í smábæ í Chile af sænska námufyrirtækinu Boliden. Krakkarnir í bænum höfðu ekki hugmynd um skaðsemi hrúgunnar og léku sér í henni eins og þetta væri sandhrúga. Mörgum árum síðar kemur í ljós að hún hafði gífurlega skaðleg áhrif og fæðast börn þar nú með hræðilegar fatlanir. Ég of félagar mínir ætluðum upphaflega á When the Dragon Swallowed the Sun en það var uppselt á hana svo við völdum einhverja mynd sem við vorum ólíklegir til að fara á venjulega og völdum þessa. Við bjuggumst ekki við miklu en þessi mynd kom svo bara rosalega á óvart! Hún fjallar jafnt um allar hliðar málsins og er rosalega hlutlaus miðað við að strákurinn sem gerði myndina er frá Chile en ólst upp í Svíþjóð. Myndin kemur manni vel inn í líf fólksins í smábænum og flettir meira að segja af mörgum vafasömu varðandi gerð samningsins um flutninginn á hrúgunni frá Svíþjóð til Chile. Toxic Playground kom skemmtilega á óvart og er með betri myndum sem ég hef farið á hingað til á RIFF.Ég er búinn að fara á nokkrar myndir til viðbótar og skelli þeim líklega inn í öðru bloggi seinna.